Stefanía Hermannsdóttir hreppti silfrið

Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum, fyrir 11-14 ára, fór fram á Selfossi helgina 27.- 28. júní. Á vef Tindastóls segir að um 240 keppendur hafi verið skráðir til leiks, þar af fimm frá UMSS.

Stefanía Hermannsdóttir náði bestum árangri Skagfirðinga á mótinu, en hún varð í 2. sæti í spjótkasti í flokki 12 ára stúlkna, kastaði 24,13 m.

Heimamenn í HSK/Selfossi sigruðu með yfirburðum í stigakeppni mótsins, UFA varð í 2. sæti og FH í 3. sæti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir