Skráning í prófkjör Pírata hefst í dag - Jón Þór Ólafsson gefur ekki kost á sér
Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, tilkynnti í morgun að hann muni ekki gefa kost á sér í næstu alþingiskosningum en opnað verður fyrir skráningar í prófkjör Pírata í dag vegna alþingiskosninga seinna á árinu.
„Markmið mitt var alltaf tryggja sjálfbærni Pírata, og í dag er hreyfingin sterkari en nokkru sinni fyrr. Það er mikill meðbyr með flokknum, grasrótin er öflug, starfsfólkið okkar er afburðahæft, þingflokkurinn hefur aldrei verið samheldnari og þau sem bjóða sig fram aftur kunna til verka. Píratar eru því svo sannarlega sjálfbærir og þar sem ég er ekki lengur nauðsynlegur í framlínuna mun ég aftur leita í friðinn utan þingsins í stað þess að leita endurkjörs,“ segir Jón Þór í grein sem hann sendi frá sér í morgun.
Í tilkynningu Pírata til fjölmiðla segir að meðfram þingstörfunum og að þeim loknum hyggst Jón Þór verja tíma sínum í stuðning við næstu kynslóð frambjóðenda og þingmanna.
„Eins og nýleg rannsókn Stefaníu Óskarsdóttur og Ómars H. Kristmundssonar sýnir eru þingmenn yfirleitt lengi að læra á starfið, sem er einfaldlega sóun. Sóun á tíma, peningum og starfskröftum. Og umfram allt sóun á tækifærum til að vinna að framgöngu stefnumála Pírata.“
Grein Jóns Þórs má nálgast í heild sinni HÉR.
Skráning í prófkjör hefst í dag
Skráning í prófkjör Pírata hefst klukkan 14 í dag og stendur til 3. mars en sama dag hefst jafnframt prófkjörið sjálft á kosningavef Pírata, x.piratar.is. Prófkjörinu lýkur 13. mars og mun þá liggja fyrir hver verða í framboði fyrir Pírata í komandi alþingiskosningum.
Hver sem er getur boðið sig fram í prófkjörinu en til þess þarf viðkomandi að skrá sig í Pírata, en það má gera á vefnum x.piratar.is. Atkvæðisrétt í prófkjörinu hafa þau sem skráð hafa verið í flokkinn í 30 daga eða lengur. Síðustu forvöð að skrá sig í Pírata til að geta greitt atkvæði í prófkjörinu eru því 11. febrúar.
Píratar munu bjóða fram í öllum kjördæmum í komandi kosningum og verður sameiginlegt prófkjör í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur. Allir meðlimir Pírata sem hafa kosningarétt í næstu alþingiskosningum geta boðið sig fram í prófkjörum Pírata, hvar sem er á landinu.
Allar upplýsingar um prófkjörin, skráningar í framboð og atkvæðisrétt má nálgast á prófkjörsvef Pírata https://piratar.is/kosningar
/
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.