Skagfirðingar á Smáþjóðaleikunum

Tveir Skagfirðingar hafa verið valdir til að keppa með íslenska liðinu á Smáþjóðaleikunum sem fara fram í Reykjavík dagana 1.- 6. júní, það eru Jóhann Björn Sigurbjörnsson og Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir.

Á heimasíðu Tindastóls segir að keppt verður í ellefu greinum íþrótta. Í frjálsíþróttakeppninni verða fulltrúar níu landa, það eru auk Íslands, Andorra, Kýpur, Liechtenstein, Luxemborg, Malta, Monakó, San Marínó og Svartfjallaland.

Jóhann Björn keppir í 100m hlaupi og boðhlaupum og Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir í hástökki.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir