Rafhleðslustöðvar á Húnavöllum

Fyrsti bíllinn hlaðinn. Mynd: hunavatnshreppur.is
Fyrsti bíllinn hlaðinn. Mynd: hunavatnshreppur.is

Á Húnavöllum hafa verið settar upp tvær rafbílahleðslustöðvar, tvisvar sinnum 22 kW hvor stöð, og því hægt er að hlaða fjóra rafbíla í senn og fræðilega getur hleðsla því orðið 88kW ef rafbílar gætu tekið við því afli. Til að heimtaug Húnavallaskóla fari ekki á yfirálag, ef hleðsla væri svo mikil á sama tíma og mikið álag væri á svæðinu, minnkar straumurinn að rafbílum sem því nemur og eru því hleðslustöðvar álagsstýrðar með nýjustu tækni í þeim málum.

Á heimasíðu Húnavatnshrepps kemur fram að stöðvarnar styðji samskiptastaðalinn OCPP 1.6 til álagstýringar og greiðslulausna og eru tilbúnar fyrir staðal ISO15118 sem gerir raforkukerfi kleift að nýta orku rafbíla og þannig keyra raforku frá rafhlöðu rafbíla inn á raforkukerfið en ekki mun verða þörf að nýta þá tækni eins og er.

„Hleðslustöðvarnar eru frá sænska framleiðandanum ChargeAmps og eru smíðaðar úr endurunnu áli og eru því umhverfisvænar eins og hægt er. Hægt er að ræsa stöðvar með RFID lykli (eins og bensínlyklarnir). Þá getur hver starfsmaður eða gestur á hóteli fengið RFID lykil og utanumhald á rafmagnsnotkun auðveld,“ segir á hunavatnshreppur.is.

Það var Orkusjóður sem veitti sveitarfélaginu styrk til framkvæmdarinnar en sjóðurinn hefur styrkt sambærileg verkefni víðs vegar um landið síðasta árið.

Hönnun raflagna og uppsetning hleðslustöðva var á höndum Átaks ehf. á Blönduósi og segir i færslunni að uppsetning hleðslustöðva sé í samræmi við markmið sveitarfélagsins um að styðja við umhverfisvæna samgöngumáta, draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og bæta með því loftgæði

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir