Óskað eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga í Húnaþingi vestra
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla, Fréttir
27.07.2021
kl. 14.03
Óskað hefur verið eftir ábendingum og tilnefningum til umhverfisviðurkenninga Húnaþings vestra 2021. Hægt er að senda tölvupóst á netfangið; umhverfisstjori@hunathing.is fyrir 16. ágúst nk.
"Með umhverfisviðurkenningum vill nefndin sem er skipuð af sveitarstjórn Húnaþings vestra vekja athygli á því sem vel er gert í sveitarfélaginu hvað varðar hirðingu og frágang lóða, snyrtilegra sveitarbæja og atvinnulóða. Einnig má benda á önnur svæði eða einstaklinga sem skilið ættu viðurkenningu," segir á vef Húnaþings vestra.
/SMH
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.