Leikfélag Sauðárkróks sýnir Skilaboðaskjóðuna í Miðgarði

Mynd tekin á æfingu í Bifröst. Skjáskot af FB.
Mynd tekin á æfingu í Bifröst. Skjáskot af FB.

Leikfélag Sauðárkróks þurfti að bregða út af vananum þetta haustið og flytja uppsetningu haustsverkefnisins fram í Miðgarð þar sem Bifröst er ekki í standi til sýnaingarhalds. Framkvæmdir í húsinu hafa tafist en þar er verið að koma fyrir lyftu fyrir hreyfihamlaða.

Að þessu sinni setur félagið upp Skilaboðaskjóðuna sem er ævintýrasöngleikur byggður á samnefndri bók Þorvaldar Þorsteinssonar sem kom út árið 1986 og naut mikilla vinsælda. Söngleikurinn var frumsýndur á stóra sviði Þjóðleikhússins í nóvember árið 1993 í leikstjórn Kolbrúnar Halldórsdóttur og sló í gegn, segir á WikiPedia. Jóhann G. Jóhannsson, tónlistarstjóri Þjóðleikhússins, samdi tónlist fyrir verkið við texta Þorvaldar og vorið 1994 kom út geisladiskur með tónlistinni í flutningi leikara og hljómsveitar leikhússins. Leikritið var aftur sett á svið Þjóðleikhússins í nóvember 2007 í leikstjórn Gunnars Helgasonar.

„Sagan snýst um Putta litla sem týnist í ævintýraskóginum og að sjálfsögðu þarf að bjarga honum frá nátttröllinu,“ segir Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir, formaður LS. „Það er þetta típýska ævintýraþema að allir þurfa að standa saman, líka stjúpan og nornin, til þess að Putti finnist,“ segir formaðurinn en með hlutverk Putta fer hinn ellefu ára gamli Björgvin Skúli Hauksson. „Þegar allir standa saman ganga hlutirnir upp og þess vegna þurfum við á því að halda að fólk standi saman og fari í leikhús í Varmahlíð,“ segir Sigurlaug og lofar að sýningin sé sniðin að öllum aldurshópum. „Þetta er fyrir alla frá tveggja ára og upp úr, mjög skemmtileg sýning fyrir fullorðna, margir fullorðnisbrandarar.“

Sigurlaug vill vekja athygli á því að þar sem Miðgarður er talsvert stærri en Bifröst verða mun færri sýningar en venjulega eða alls fjórar. Frumsýning verður miðvikudaginn 12. október klukkan 18, önnur sýning á sama tíma á föstudag og svo klukkan 14 laugar- og sunnudag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir