Kormákur/Hvöt mætir Kára á Króknum
feykir.is
Skagafjörður
20.05.2022
kl. 21.31
Það verður spilað í 3. deildinni í knattspyrnu á Króknum á morgun, laugardaginn 21. maí, en þá á Húnvetningar í Kormáki/Hvöt lið Kára frá Akranesi í heimsókn. Til stóð að leikið yrði á Blönduósvelli en hann er væntanlega ekki klár í slaginn og gervigrasið á Sauðárkróki því tekið til kostanna.
Það er um að gera fyrir stuðningsmenn Kormáks/Hvatar að mæta á Krókinn og styðja sitt lið. Húnvetningar hafa unnið annan leik sinn í 3. deildinni til þessa og eru með þrjú stig en lið Kára er með fjögur stig. Það má því reikna með hörkuleik.
Samkvæmt upplýsingum Feykis verður leikurinn einnig sendur út í streymi og er hlekkur á það hér >
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.