Konur spretta úr spori á laugardaginn
Hið árlega Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið þann 13. júní næstkomandi á um 80 stöðum víðsvegar um landið. Fyrsta Kvennahlaupið var haldið árið 1990 og var markmið þess að fá fleiri konur út að hreyfa sig og að hvetja þær til þátttöku í starfi íþróttahreyfingarinnar á Íslandi. Á vefsíðu Kvennahlaupsins segir að þau markmið hafi um margt náðst þar sem konur hreyfa sig mun meira í dag en fyrir 30 árum, íslenskar íþróttakonur eru að ná frábærum árangri á heimsvísu og margar konur eru í forsvari fyrir íþróttahreyfinguna hérlendis. Áherslan núorðið sé þó ekki hvað síst á samstöðu kvenna, að hver njóti þess að hreyfa sig á sínum forsendum og eigi ánægjulega samverustund með fjölskyldu og vinum.
Í tilefni 30 ára afmælisins var hannaður nýr kvennahlaupsbolur og var Linda Árnadóttir fatahönnuður fengin til þess. Nýi bolurinn er 100% endurunninn, úr endurunninni lífrænni bómull og endurunnu plasti. Bolurinn kemur í stærðum 4-6 ára, 7-8 ára, -10 ára, 11-12 ára, XS, S, M, L, XL, XXL og XXXL. Bolurinn kemur í takmörkuðu upplagi og verður einungis hægt að kaupa hann á tix.is og á örfáum sölustöðum en ekki á hlaupastöðunum. Einnig er hægt að skrá sig í hlaupið á tix.is, án þess að kaupa bol, en tilvalið er að nýta gamlan Kvennahlaupsbol til að hlaupa í aftur. Skráningargjald er 1.500 kr. Á vef hlaupsins má kynna sér allt um skráningu og kaup á bolum ásamt hlaupastöðum og tíma.
Samkvæmt upplýsingum á vefnum verður hlaupið á fimm stöðum á Norðurlandi vestra
Á Suðárkróki verður hlaupið frá sundlauginni í dag, fimmtudaginn 11. júní. Hlaupið hefst klukkan 17:00.
Á öðrum stöðum verður hlaupið á laugardag sem hér segir:
Á Borðeyri frá Tangahúsi klukkan 13:00.
Á Hvammstanga frá íþróttamiðstöðinni klukkan 11:00.
Á Blönduósi frá íþróttamiðstöðinni klukkan 10:00.
Í Varmahlíð frá sundlauginni klukkan 10:30.
Á Hólum frá sundlauginni klukkan 11:00.
Á Hofsósi frá sundlauginni klukkan 11:00.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.