Kiwanisklúbburinn Freyja selur K lykilinn

Landssöfnun Kiwanishreyfingarinnar „Lykill að lífi“ stendur nú yfir með sölu á K lyklinum. Kiwanisklúbburinn Freyja á Sauðárkróki stendur vaktina í Skagfirðingabúð í dag til klukkan 18 og á morgun bætist Hlíðarkaup við en þá verður selt á milli klukkan 16-18.

Þetta mun vera í 16 skiptið sem söfnunin fer fram og beinist verkefnið að geðverndarmálum í landinu en ágóði sölu K lykilsins rennur í það málefni.
Lykilinn kostar 2500 og segir í tilkynningu Freyjanna að posi verði á staðnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir