Jón Gísli Eyland leikur með U17 í dag

Fræknir feðgar léku saman í sumar í 2. deildinni. Gísli Eyland og Jón Gísli.
Fræknir feðgar léku saman í sumar í 2. deildinni. Gísli Eyland og Jón Gísli.

Hinn ungi og bráðefnilegi knattspyrnumaður í Tindastól, Jón Gísli Eyland Gíslason, er í byrjunarlandsliði Íslands U17 sem mætir Finnlandi kl. 15:00 í dag. Jón Gísli er aðeins 15 ára gamall, fæddur 2002 en lék með meistaraflokki Tindastóls í sumar. U17 ára lið karla leikur fyrsta leik sinn í undankeppni EM 2018 í dag þegar liðið mætir Finnlandi, en leikið er í Finnlandi. Leikurinn hefst klukkan 15:00. Önnur lið í riðlinum eru Rússland og Færeyjar.

Liðið er þannig skipað:

Markvörður: Sigurjón Daði Harðarson (Fjölnir)

Varnarmenn: Jón Gísli Eyland Gíslason (Tindastóll), Finnur Tómas Pálmason (KR), Teitur Magnússon (FH) og Atli Barkarson (Norwich)

Miðjumenn: Ísak Snær Þorvaldsson, fyrirliði (Norwich), Jóhann Árni Gunnarsson (Fjölnir) og Sölvi Snær Fodilsson (Stjarnan)

Kantmenn: Karl Friðleifur Gunnarsson (Breiðablik) og Kristall Máni Ingason (Fjölnir).

Framherji: Andri Lucas Guðjohnsen (Espanyol).

Leikurinn er í beinni útsendingu og hægt að nálgast hann HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir