Helga Bjarnadóttir hlaut Samfélagsverðlaun Skagafjarðar
Samfélagsverðlaun Skagafjarðar voru veitt í sjöunda skipti við setningu Sæluviku Skagfirðinga fyrr í dag en þau veitt árlega þeim einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í Skagafirði sem hafa með störfum sínum lagt mikið til þess að efla Skagfirskt samfélag.
Helga þakkar fyrir sig.
Í máli Gunnsteins Björnssonar, formanns atvinnu, menningar og kynningarnefndar, kom fram að 33 tilnefningar hafi borist nefndinni þar sem 14 aðilar voru tilnefndir og allar verðskuldaðar. Því var úr vöndu að ráða fyrir nefndina að velja úr svo mörgum góðum kostum en að endingu hafi nefndin komist að einróma niðurstöðu um að Samfélagsverðlaun Skagafjarðar 2022 skyldu veitt Helgu Bjarnadóttur í Varmahlíð
„Á langri ævi hefur Helga auðgað skagfirskt samfélag með margvíslegu móti þó það hafi ekki alltaf farið hátt, enda Helga lítið fyrir að hreykja sér af verkum sínum. Hún á að baki farsælan feril sem barnakennari og skólastjóri og hafði einstaklega góð og mótandi áhrif á nemendur sína. Margir þeirra halda mikilli tryggð við hana æ síðan. Hún hefur verið og er enn virk í starfi kvenfélaganna í Skagafirði, og sat meðal annars um árbil í stjórn kvenfélagsambands Skagafjarðar, Helga hefur komið að bókaútgáfu og um árabil hefur hún haft forgöngu um vinsælt félagsstarf aldraða Skagfirðinga að Löngumýri og enn heldur hún því starfi uppi af miklum krafti með vinkonum sínum.
Helga ásamt börnum, barnabörnum
og tengdadóttur sem fylgdu henni.
Helga er öðrum íbúum Skagafjarðar fyrirmynd hvað varðar fegrun og umgengni um umhverfi sitt. Sér þess glöggan stað bæði í heimagarði hennar og á Löngumýri. Síðast en ekki síst skal nefnt að hún hefur ætíð látið sig miklu skipta líðan og velferð þeirra sem einhverra hluta vegna standa höllum fæti í lífinu. Ófáir eru þeir sem með ýmsum hætti hafa notið manngæsku og liðsinnis Helgu í gegnum tíðina og er svo enn þó aldurinn sé byrjaður að setja mark sitt á starfsgetu hennar. Hér er fátt eitt talið af störfum Helgu fyrr og nú, í þágu samfélags okkar.
Þær tóku sig vel út Helga Bjarnadóttir
Samfélags verðlaunahafi 2022 og
Jóhanna Björnsdóttir, sem skrýddist
búningi sem Pilsaþytur hefur afhent
Svf. Skagafirði til notkunar á hátíðastundum.
Helga Bjarnadóttir er fulltrúi þeirrar kynslóðar sem ekki telur mikla þörf á að láta bera á þeim óeigingjörnu sjálfboðaliðastörfum sem raunverulega skipta svo miklu máli í að skapa það góða samfélag sem við Skagfirðingar búum í.
Það er mér því mikill heiður að fá að afhenda þér Helga Bjarnadóttir Samfélagsverðlaun skagafjarðar sem lítinn þakklætis vott fyrir öll þín óeigingjörnu störf í gegn um tíðina,“ sagði Gunnsteinn við þetta tækifæri.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.