Gul veðurviðvörun
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Strandir og Norðurland vestra sem gildir frá klukkan 16 og til miðnættis. Lægð fer yfir landið í dag og henni fylgir talsverð úrkoma og vindur. Spáð er allhvassri eða hvassri norðaustanátt og talsverðri eða mikilli rigningu á Ströndum. Búast má við auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum sem eykur hættu á flóðum og skriðuföllum. Veðrið verður slæmt til útivistar.
Gular viðvaranir eru einnig í gildir fyrir Vestfirði og miðhálendið. Fólk á ferðalagi er hvatt til að fylgjast vel með þeim og fylgjast með hvort nýjar viðvaranir verði gefnar út fyrir helgina.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag er gert ráð fyrir norðan 10-18 m með kalsarigningu og jafnvel slyddu eða snjókomu til fjalla. Á sunnudag lægir vind og styttir upp síðdegis.
/SHV
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.