Fjórar Stólastúlkur í liði ársins í Lengjudeildinni
Nú á laugardaginn kynnti Fótbolti.net valið á liði ársins í Lengjudeild kvenna en það voru þjálfarar og fyrirliðar liðanna í deildinni sem völdu úrvalslið tímabilsins og kom ekki á óvart að liðskonur í Tindastóli voru áberandi. Fjórar þeirra, Laufey Harpa, Bryndís Rut, Mur og Jackie, voru í liði ársins, Amber og María Dögg komust á bekkinn og síðan urðu þjálfarar Tindastóls,Guðni Þór Einarsson og Jón Stefán Jónsson, hlutskarpastir í vali á þjálfurum ársins.
Murielle Tiernan var valin leikmaður ársins en hún gerði 25 mörk í sumar og hefur gert 77 mörk með liði Tindastóls í 53 leikjum tímabilin 2018, 2019 og 2020. Í frétta Fótbolta.nets kemur fram að öll tímabilin sem Mur hefur spilað með liði Tindastóls hún verið markahæst í sinni deild og fengið öll möguleg atkvæði í lið ársins og sem leikmaður ársins. Þrjú ár í röð! Það verður spennandi að fylgjast með henni í Pepsi Max deildinni næsta sumar.
Vegna valsins á þjálfurum ársins segir: „Þeir Guðni Þór og Jón Stefán voru að ljúka sínu þriðja tímabili sem þjálfarar Tindastóls og tókst að stýra liðinu upp um tvær deildir á þeim tíma. Á fyrsta tímabili sínu með liðið vann Tindastóll 2. deild og í fyrra gerði liðið harða atlögu að því að komast upp um deild. Í ár náðist svo sögulegur árangur en Tindastóll sigraði Lengjudeildina sannfærandi og mun því leika í efstu deild að ári, í fyrsta skipti í sögu félagsins.“
Annars var lið ársins 2020, sem spilar leikkerfið 4-3-3, á þessa leið:
Chante Sherese Sandiford - Haukar
Laufey Harpa Halldórsdóttir - Tindastóll
Celine Rumpf - Keflavík
Bryndís Rut Haraldsdóttir - Tindastóll
Mikaela Nótt Pétursdóttir - Haukar
Jacqueline Altschuld - Tindastóll
Natasha Anasi - Keflavík
Sæunn Björnsdóttir - Haukar
Murielle Tiernan - Tindastóll
Paula Isabelle Germino Watnick - Keflavík
Vienna Behnke - Haukar
Varamenn:
Amber Kristen Michel - Tindastóll
María Dögg Jóhannsdóttir - Tindastóll
Sunna Líf Þorbjörnsdóttir - Haukar
Taylor Lynne Bennett - Afturelding
Sesselja Líf Valgeirsdóttir - Afturelding
Nadía Atladóttir - Víkingur
Þórhildur Þórhallsdóttir - Augnablik
Ein Stólastúlka til viðbótar fékk atkvæði í valinu en það var sóknarleikmaðurinn Hugrún Pálsdóttir.
Feykir óskar stúlkunum og þjálfurunum til hamingju með heiðurinn.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.