Bjarni Jónsson og Lilja Rafney berjast um fyrsta sætið hjá VG í Norðvesturkjördæmi
Framboðsfrestur Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi er runninn út og munu átta gefa kost á sér í fimm efstu sætin í Norðvesturkjördæmi, í rafrænu forvali sem haldið verður 23. – 25. apríl 2021. Bjarni Jónsson, fiskifræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi í Skagafirði, sækist eftir 1. sæti líkt og Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður frá Suðureyri.
Þóra Margrét Lúthersdóttir, sauðfjár- og skógarbóndi Forsæludal Austur-Húnavatnssýslu, býður sig fram í 2.-3. sæti sem og nafna hennar Þóra Magnea Magnúsdóttir, kennari á Akranesi en Sigríður Gísladóttir, dýralæknir Ísafirði býður sig fram í 2.-4. sæti.
Þrjú bjóða sig fram í 3.-5. sæti, þau Lárus Ástmar Hannesson, grunnskólakennari og bæjarfulltrúi Stykkishólmi, María Hildur Maack, umhverfisstjóri Reykhólahreppi og Nanný Arna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi Ísafirði.
Kosning hefst á miðnætti 23. apríl og stendur til kl. 17.00 þann 25. apríl og verður kosið um fimm efstu sæti á listanum, þar af bindandi í efstu þrjú en í samræmi við forvalsreglur VG. Atkvæðisbær í forvalinu eru öll þau sem skráð eru í hreyfinguna í kjördæminu tíu dögum fyrir kjörfund.
Tveir rafrænir framboðsfundir verða haldnir og opnir öllum:
10. apríl kl. 12.00
19. apríl kl. 20.00.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, stýrir fundunum en hlekk inn á þá verður hægt að nálgast á vg.is og á samfélagsmiðlum.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.