Bætti sinn fyrri árangur í sjöþraut um 256 stig
Ísak Óli Traustason, frjálsíþróttamaður hjá UMSS, keppti um helgina í sjöþraut karla á skoska meistaramótinu í fjölþrautum sem fram fór í Glasgow. Auk Ísaks kepptu í þrautinni þeir Tristan Freyr Jónsson ÍR, og Blikarnir Ingi Rúnar Kristinsson og Ari Sigþór Eiríksson, en þessir kappar urðu í fjórum fyrstu sætunum á Meistaramóti Íslands í fjölþrautum í lok janúar sl.
Á heimasíðu Tindastóls segir að Ísak Óli hafi staðið sig vel á fyrri degi þrautarinnar. Hann hlaut samtals 2794 stig úr greinunum fjórum, 110 stigum meira, en þegar hann vann bronsið á MÍ í janúar. Árangur hans í einstökum greinum var: 60 m hlaup 7,17 sek, sem er persónuleg bæting, langstökk 6,87 m, kúluvarp 11,53 m, hástökk 1,78 m.
Skagfirðingurinn Tristan Freyr Jónsson, (Huldu Skúladóttur og Jóns Arnars Magnússonar), meiddist í langstökkskeppninni og hætti keppni.
Seinni keppnisdag lauk Ísak Óli keppni í þrautinni með glæsibrag en hann hlaut samtals 4929 stig og bætti sinn fyrri árangur í sjöþraut um 256 stig. Árangur hans í einstökum greinum var: 60 m grindahlaup 8,44 sek, stangarstökk 3,67 m (pm) og 1000 m hlaup 2:53.00 mín (pm).
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.