Umsóknarfrestur í Nýsköpunarsjóð námsmanna framlengdur til 15. febrúar 2021

Auglýst hefur verið eftir umsóknum í Nýsköpunarsjóð námsmanna en markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða háskólanema í grunn- og meistaranámi í sumarvinnu við rannsókna- og þróunarverkefni. Styrkir verða veittir til rannsókna- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja.

Umsóknir um styrki eru metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein. Í tilkynningu um málið segir að verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns undir leiðsögn ábyrgðarmanna. Styrkir eru ekki veittir til lokaverkefna námsmanna en úthlutun mun liggja fyrir um miðjan mars 2021.

Háskólanemar í grunn- og meistaranámi geta sótt um styrki Nýsköpunarsjóð námsmanna auk sérfræðinga innan háskóla, stofnana og fyrirtækja sem óska eftir að ráða háskólanema í sumarvinnu við rannsóknir.

Sótt er um í gegnum rafrænt umsóknarkerfi á heimasíðu Rannís þar sem einnig er hægt að nálgast nánari upplýsingar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir