Ályktun um strandveiðar send Matvælaráðuneytinu

Smábátafélagið Drangey hefur sent ályktun um stranveiðar til matvælaráðuneytisins.


Ályktun

Drangeyjar –smábátafélags Skagafjarðar um strandveiðar

Drangey-smábátafélag Skagafjarðar fordæmir þá fyrirætlan matvælaráðherra að stöðva enn einu sinni strandveiðar áður en lögboðnu strandveiðitímabili lýkur, nú jafnvel í lok júlí. Enn verri er þó tillaga ráðherra um að hverfa frá 4x12 daga fyrirkomulagi veiðanna sem komið var á fyrir fimm árum og taka aftur upp svæðisbundnar „ólympískar veiðar“ handfærabáta með tilheyrandi slysahættu og ójafnræði milli útgerða og byggðarlaga.

Drangey – smábátafélag Skagafjarðar vekur líka athygli á að sú vísindalega ráðgjöf sem ráð­herra segist fara eftir er rúin trausti yfirgnæfandi meirihluta skipsstjórnarmanna og annarra fiskimanna um allt land. Taka má mörg dæmi um ótrúverðugleika ráðgjafarinnar en nærtækast að nefna að um 150.000 tonnum munar á þeim stofnstærðarmælingum á þorski sem fram fóru sl. vor og haust og ráðgjöfin byggist helst á. Það er því í grátbroslegri mótsögn við heilbrigða skynsemi þegar því er haldið fram í ráðgjöfinni að 1000 þorsktonn til eða frá séu til þess fallin að ógna sjálfbærni í veiðum úr þessum stofni.

 

Skagafirði 8. júlí 2022

Magnús Jónsson formaður

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir