Alþjóðleg verðlaunasamkeppni um nýsköpun fyrir sjálfbæran landbúnað og matvæli
Á heimasíðu MAST kemur fram að Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) kalli eftir umsóknum í alþjóðlega verðlaunasamkeppni um nýsköpun fyrir sjálfbæran landbúnað og matvæli. Viðfangsefnið að þessu sinni er nýsköpun til að umbreyta matvælakerfum (e. „Innovation to transform food systems“).
Einstaklingar, einkafyrirtæki og stofnanir á heimsvísu eru hvött til að skila inn nýsköpunarverkefnum með skýrum niðurstöðum sem stuðlað hafa að aukinni sjálfbærri þróun á sviði umhverfis-, fjárhags- og félagsmála.
Skilafrestur á umsóknum er til 19. mars 2021 og er verðlaunafé alls tæpar 8 milljónir króna. Verðlaunasamkeppnin er nú haldin í annað sinn. Að baki henni standa FAO og alríkisstjórn Sviss.
Sjá nánar á Mast.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.