Viðhorf fólks gagnvart torfhúsaarfi þjóðarinnar - Vísindi og grautur
Ferðamáladeild Háskólans á Hólum hafa undanfarna vetur haldið fyrirlestraröð undir heitinu Vísindi og grautur. Vegna Covid-19 hefur þessi fyrirlestraröð verið flutt á netið í vetur og verður því aðgengileg öllum áhugasömum. Annað erindi vetrarins verður haldið miðvikudaginn 2. desember næstkomandi. Í tilkynningu frá ferðamáladeild segir að í erindinu muni Sigríður Sigurðardóttir fjalla um niðurstöður rannsóknar um viðhorf fólks gagnvart torfhúsaarfi þjóðarinnar, hvaða sess torhús hafa í hugum heimamanna og viðbrögð erlendra gesta gagnvart þeim.
„Sigríður Sigurðardóttir, er aðjúnkt við Háskólann á Hólum og vann rannsóknina í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands, Minjastofnun Íslands, Rannsóknarmiðstöð ferðamála og Byggðasafn Skagfirðinga. Byggðarannsóknarsjóður Byggðastofnunar styrkti rannsóknina. Niðurstöður rannsóknarinnar hafa verið birtar í tveimur skýrslum (I Viðhorf til nytja og minjagildis torfbygginga og II Viðhorf til torfbygginga í ferðaþjónustu) sem hægt er að nálgast á vefsíðu skólans á: http://holar.is/ferdamaladeild/utgefid_efni. Efni þriðju skýrslunnar, sem er III Gestadómur um torfbæi, verður einnig kynnt í erindinu.
Erindið verður flutt á Zoom. Óskað er eftir því að áhugasamir skrái sig inn á fundinn í síðasta lagi daginn áður til að tengja viðkomandi inn á fundinn.“
Fyrirlesari: Sigríður Sigurðardóttir
Tittill erindis: Viðhorf fólks gagnvart torfhúsaarfi þjóðarinnar
Tími: 2. desember kl: 13:00-14:00
Fyrirlesturinn verður haldinn á Zoom.
Nauðsynlegt er að skrá sig, á þessari slóð: https://forms.gle/uy7CQWwYh3cDxFtP7
Þeir sem skrá sig fá senda Zoom-slóð fyrir upphaf fundar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.