Tveir í einangrun á Norðurlandi vestra
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
13.01.2021
kl. 13.39
Tveir eru nú í einangrun vegna kórónuveirusmits samkvæmt nýrri tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra. Tekið er fram í tilkynningu að smitin séu landamærasmit og því ekki tilkomin á svæðinu. Fólk er samt sem áður hvatt til að halda vöku sinni áfram og muna einstaklingsbundnar sóttvarnir.
Sex greindust með kórónónuveiru á landinuí gær, þar af voru þrír í sóttkví. Tíu greindust með virkt smit á landamærunum en tveir reyndust með mótefni. 14 bíða niðurstöðu mótefnamælingar. 242 eru nú í sóttkví á landinu öllu og 164 í einangrun samkvæmt tölum á covid.is. 19 eru á sjúkrahúsi og enginn á gjörgæslu.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.