Tónleikar í Hólaneskirkju á Skagaströnd
Kirkjukór Hólaneskirkju heldur tónleika í Hólaneskirkju á Skagaströnd fimmtudagskvöldið 30. maí nk. og hefjast tónleikarnir kl. 20:00.
Hljómsveit hússins verður skipuð þeim - Hugrúnu Sif Halldórsdóttur á flygil, Jóni Ólafi Sigurjónssyni á bassa og Valtý Sigurðssyni á trommum. Það var auðsótt leyfið sem Feykir fékk að vitna beint í Facebooksíðu hljómsveitarstjórans Hugrúnar þar sem hún segir orðrétt að „Jenný og Ragnheiður séu farnar að slípa raddböndin fyrir smá sóló, Valtýr fór í aðgerð á hendi til að geta sýnt ný trommusóló, Tóti er farinn að pússa þverflautuna fyrir tvö lög og ég er orðin svaka spennt,“ og veltir hún því svo fyrir sér í lokin hvort við ætlum ekki öll að mæta.
Dægurlög, sjómannalög og alls konar skemmtilegt á efnisskránni.
Aðgangseyrir er 2500 kr. og þarf að borga með reiðufé.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.