Stefnt að opnun Skíðaskála í Tindastól um páskana
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Lokað efni
17.02.2021
kl. 16.15
Það var bjart yfir skíðaskálanum nýja þegar blaðamaður leit við í Tindastóli á dögunum. Eins og sést mun aðstaða skíðafólks og starfsmanna stórlega batna með tilkomu skálans og plássið margfaldast svo um munar. Mynd: PF
Á skíðasvæði Tindastóls er nú verið að standsetja heilmikið mannvirki úr 27 gámum sem áður gegndu hlutverki vinnubúða hjá Landsvirkjun og að áliti sérfræðinga í góðu ásigkomulagi. Grunnur var steyptur síðasta sumar sem gámunum hefur verið komið fyrir á og munu þeir í framtíðinni þjóna útivistarfólki hvort heldur sem er sumar eða vetur. Vonir standa til að opna megi hinn nýja skíðaskála um páskana og hafði Feykir samband við Sigurð Bjarna Rafnsson, formann skíðadeildar Tindastóls, og forvitnaðist um málið.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.