Prjónuð póstkort hjá Textílmiðstöð Íslands

Við hitum upp fyrir Prjónagleðina 2021 með því að bjóða upp á spennandi prjónanámskeið með Deborah Gray á netinu. Langar þig að prófa eitthvað nýtt í prjóni, stíga aðeins útfyrir boxið og láta reyna á hugmyndaflugið? Hvernig líst þér á að læra að hanna og prjóna þín eigin póstkort? Þú gætir jafnvel eignast prjónapennavin sem þú skiptist á fallega útprjónuðum póstkortum við.

Netnámskeið fimmtudagskvöldin; 18., 25. febrúar & 4. mars, kl: 19:30 – 21:30 og skiptast í þrjá hluta. Í fyrsta hlutanum er farið í gengum hönnunarferli póstkortsins og í öðrum hluta er farið í prjónatæknina sem þarf til. Í þriðja hluta námskeiðsins sýna þátttakendur og segja frá sínum póstkortum og geta leitað ráða ef á þarf að halda.

Deborah Gray hefur prjónast á við Sue vinkonu sína með þessum hætti í tvö ár, innblásin af #knittedcorrespondence á Instagram og KNITSONIK bókinni Stranded Colorwork Sourcebook eftir Felicity Ford. Þær stöllur prjónast á um hversdagslega hluti, atburði og upplifanir.

Námskeiðið verður á ensku.
Listi yfir nauðsynleg efni og áhöld verður sendur út áður en námskeiðið hefst.
Upptökur af námskeiðinu verða aðgengilegar fyrir skráða þátttakendur.
Þátttakendur verða að hafa grunnkunnáttu í prjónaskap.

Nánari upplýsingar er hægt að finna á Facebook-síðu Prjónagleðinnar en hægt er að skrá sig á námskeiðið HÉR.

/Fréttatilkynning

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir