Val um mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu

Húnahornið býður lesendum sínum að velja mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu, líkt og gert hefur verið undanfarin ár. Lesendur eru beðnir að senda inn tilnefningu í gegnum þar til gerðan rafrænan atkvæðaseðil þar sem tiltekið er nafn þess sem tilnefndur er svo og ástæða tilnefningarinnar. Hver og einn getur sent inn eina tilnefningu. Maður ársins í Austur-Húnavatnssýslu getur verið einn einstaklingur eða hópur manna.
 

Á síðasta ári völdu lesendur Húnahornsins björgunarsveitarfólk í Björgunarfélaginu Blöndu sem menn ársins í Austur-Húnavatnssýslu en björgunarsveitarfólk stóð í ströngu í desember 2019 þegar mikið óveður gekk yfir landið. Félagsmenn lögðu mikið á sig við erfiðar aðstæður við að aðstoða og tryggja öryggi íbúa í óveðrinu og að aðstoða fyrirtæki og stofnanir í héraðinu.

Allir lesendur Húnahornsins eru hvattir til að taka þátt í valinu en það má gera með því að smella hér.

Valið stendur til miðnættis 22. janúar næstkomandi og verða úrslit kynnt degi síðar.

Menn ársins í Austur-Húnavatnssýslu síðustu ár eru þessir:

2019: Björgunarsveitarfólk í Björgunarfélaginu Blöndu
2018: Guðjón Ragnarsson og hundurinn Tinni
2017: Eyþór Franzon Wechner
2016: Skarphéðinn Húnfjörð Einarsson
2015: Róbert Daníel Jónsson
2014: Brynhildur Erla Jakobsdóttir
2013: Elín Ósk Gísladóttir
2012: Kári Kárason og Pétur Arnar Kárason
2011: Einar Óli Fossdal
2010: Bóthildur Halldórsdóttir.
2009: Bóthildur Halldórsdóttir.
2008: Lárus Ægir Guðmundsson.
2007: Rúnar Þór Njálsson.
2006: Lárus B. Jónsson.
2005: Lárus B. Jónsson.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir