Hvað á barnið að heita?
Húnahornið segir af því að bráðlega opnar skrifstofusetur á Hvammstanga í húsnæði Landsbankans á Höfðabraut 6. Þar verður boðið upp á skrifstofuaðstöðu fyrir þá sem vinna störf án staðsetningar og aðra þá sem þurfa á vinnuaðstöðu að halda og þá munu skrifstofur Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra flytjast í húsnæðið. Á vef SSNV er auglýst eftir nafni á húsnæðið sem væri lýsandi fyrir starfsemina og þá er því beint til þeirra sem hyggjast leggja heilann í bleyti að ekki er verra að nafnið tengist með einhverjum hætti Húnaþingi vestra.
„Skrifstofusetrið er áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands vestra sem unnið er með stuðningi frá Landsbankanum en afgreiðsla bankans verður áfram rekin með óbreyttu sniði í húsnæðinu, að því er segir á vef SSNV. Þar kemur einnig fram að verið sé að gera smávægilegar breytingar á rýminu áður en hægt er að opna aðstöðuna en að hún verði öll eins og best verði á kosið, rúmgóð og björt,“ segir á Húnahorninu.
Hugmyndasmiðir geta sent tillögur á netfangið ssnv@ssnv.is í síðasta lagi 15. mars næstkomandi. Sá sem sendir inn vinningstillöguna fær gjafabréf upp á þriggja rétta máltíð fyrir tvo á Sjávarborg (ef fleiri en einn senda inn sömu tillögu verður dregið um vinningshafann). Starfsmenn SSNV munu leggja mat á innsendar hugmyndir og leggja tillögu að nafni á skrifstofusetrið fyrir stjórn samtakanna.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.