Grænbók um byggðamál
Grænbók um byggðamál, sem ætlað er að meta stöðu byggðamála og vera grundvöllur fyrir nýja stefnumótun í byggðamálum til fimmtán ára, hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar um grænbókina en frestur til að skila umsögn er til og með 25. janúar 2021.
Í tilkynningu frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu segir að hér sé um er að ræða fyrstu grænbók, sem tekin hefur verið saman um byggðamál í takt við stefnumótunarferli Stjórnarráðsins og samræmingu áætlana á sviði samgöngu-, fjarskipta-, sveitarstjórnar- og byggðamála. Í grænbókinni er leitast við að svara því hvernig núgildandi byggðaáætlun hafi reynst og hverjar séu helstu áskoranir næstu fimmtán ára. Þá eru sett fram lykilviðfangsefni og áherslur og lagðar til leiðir til að fylgja þeim eftir.
Grænbókin er umræðuskjal og er almenningi og er haghöfum boðið að leggja fram sín sjónarmið sem nýst gætu í stefnumótuninni. Að loknu samráði eru niðurstöður dregnar saman (hvítbók) og mótuð stefna til 15 ára og aðgerðaáætlun til fimm ára.
Sjá nánar frétt á vef samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.