Fólk hvatt til að fresta för ef kostur er

Mynd: vegagerdin.is
Mynd: vegagerdin.is

Vegagerðin hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem hún hvetur almenning sem hyggur á ferðalög milli Borgarness og Akureyrar til að fresta för. Er það gert vegna bikblæðinganna sem eru víða á leiðinni og hafa valdið miklum skemmdum á bifreiðum og slysahættu.

Fólki er ráðlagt að bíða með að ferðast um þennan kafla í a.m.k. sólarhring sé þess er nokkur kostur og fylgjast með framvindunni á morgun og næstu daga. Ef það er ekki mögulegt eru ökumenn hvattir til að aka varlega og eins og alltaf og ætíð eftir aðstæðum.

Vegagerðin hefur einnig óskað eftir því við flutningaaðila, þá sem sinna vöruflutningum og annari umferð þungra ökutækja, að þeir geri þrennt. Lækki loftþrýsting til að minnka álag, minnki farm og létti þannig ökutækið og dreifi álaginu á vegakerfið svo sem kostur er með því að flutningur fari ekki allur fram á svipuðum tíma dags

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir