Fækkar á Norðurlandi vestra

Lítilsháttar fækkun varð á, Norðurlandi vestra, Vesturlandi og Norðurlandi eystra frá 1. desember 2020 til 1. febrúar sl. samkvæmt samantekt Þjóðskrár Íslands. Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði aftur á móti um 0,2% eða um 376 íbúa en mest hlutfallsleg fjölgun var á Vestfjörðum eða um 0,3% eða um 18 íbúa. 

Í Sveitarfélaginu Skagafjörður fjölgaði um tvö á tímabilinu og telur nú alls 4092 íbúa fleiri en í öllum hinum sveitarfélögunum til samans þar sem 3313 manns búa. Í Húnavatnshreppi fjölgaði einnig um tvo en þar eru 371 skráðir til heimilis. Í Húnaþingi vestra, Skagabyggð og í Akrahreppi stóð mannfjöldi í stað en í Húnaþingi búa 1219, í Skagabyggð 92 og 201 í Akrahreppi. Á Blönduósi fækkaði um þrjá en þar búa nú 954 einstaklingar en mest varð fækkunin á Norðurlandi vestra á Skagaströnd þar sem fækkaði um átta en þar eru skráðir 467 íbúar.

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 178 á tímabilinu Það sveitarfélag sem kemur næst var Kópavogur en þar fjölgaði íbúum um 169 á sama tímabili og íbúum Mosfellsbæjar fjölgaði um 104 íbúa.
Íbúum Hafnarfjarðarkaupstaðar hefur fækkað um 107 íbúa á sama tímabili.
Hlutfallslega mest fjölgun í Helgarfellssveit

Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Helgafellsveit fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna tvo mánuði eða um 7,7% en íbúum þar fjölgaði þó einungis um 5 íbúa eða úr 66 í 70 íbúa.
Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Tjörneshreppi um 3,6% og Ásahreppi um 3,3%. Þá fækkaði íbúum í 30 sveitarfélagi af 69 á ofangreindu tímabili.

HÉR er hægt að nálgast skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2019 og 2020.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir