Ert þú nokkuð að gleyma þér?
Opnað var fyrir framtalsskil 2021, vegna tekna 2020, þann 1. mars. Lokaskiladagur er á morgun, föstudag, 12. mars.
Framtalið þitt er aðgengilegt á þjónustuvef Skattsins, www.skattur.is og ber öllum þeim sem náð hafa 16 ára aldri í lok árs 2020 að skila skattframtali og telja fram tekjur sínar og eignir.
Framtalsleiðbeiningar 2021 er á vefnum ásamt bæklingi með einföldum framtalsleiðbeiningum þar sem stiklað er á stóru yfir það helsta sem einstaklingar þurfa að huga að við skil á skattframtali.
Notast þarf við rafræn skilríki eða veflykil til auðkenningar inn á þjónustuvefinn við innskráningu.
Hvernig fæ ég rafræn skilríki?
Rafræn skilríki fyrir ungmenni yngri en 18 ára
Hvar má nálgast týndan veflykil?
Lendir þú í vandræðum með framtal þitt verður einnig hægt að hafa samband við framtalsaðstoð í síma 442 1414 eða senda fyrirspurnir á netfangið framtal@skatturinn.is.
Mæli með að nýta daginn í dag:) gangi ykkur vel
Sigga sigga sigga
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.