Brautskráning frá Háskólanum á Hólum
Síðastliðinn föstudag, 11. júní, var brautskráningarathöfn Háskólans á Hólum haldin í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð. Alls útskrifuðust 45 nemendur í þetta skiptið, þar af einn samtímis af tveimur námsleiðum.
Greint er frá því á heimasíðu skólans að frá hestafræðideild hafi 21 nemandi útskrifast, einn með diplóma í reiðmennsku og reiðkennslu (leiðbeinendapróf) og 20 með BS próf í reiðmennsku og reiðkennslu. Frá ferðamáladeild útskrifuðust einnig 20 einstaklingar með 21 námsgráðu: Þrettán með diplómu í viðburðastjórnun, sex með BA í ferðamálafræði og tveir með BA í stjórnun ferðaþjónustu og móttöku gesta. Frá fiskeldis- og fiskalíffræðideild útskrifuðust fjórir nemendur: Þrír með diplómu í fiskeldisfræði og einn með MS í sjávar- og vatnalíffræði.
Fram kemur í frétt skólans að óvenjumikið hafi verið um forföll á meðal brautskráningarnema, og kom þar margt til, svo sem búseta erlendis, Cvid-sprautur og slæmt ferðaveður á fjallvegum, auk kynbótasýninga hjá hestamönnum. Alls mættu 20 af þeim 45 sem voru brautskráðir og hélt skólinn þeim og þeirra gestum veglega kaffiveislu að athöfn lokinni.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.