Auglýst eftir frambjóðendum á lista VG í Norðvesturkjördæmi
Vinstrihreyfingin grænt framboð í Norðvesturkjördæmi auglýsir eftir frambjóðendum á lista hreyfingarinnar í kjördæminu fyrir komandi alþingiskosningar. Forvalið fer fram með rafrænum hætti dagana 23., 24. og 25. apríl. Kosning hefst á miðnætti 23. apríl og stendur til kl. 17.00 þann 25. apríl.
Kosið verður um fimm efstu sæti á listanum, þar af bindandi í efstu þrjú en í samræmi við forvalsreglur VG. Framboðsfrestur rennur út á miðnætti 2. apríl. Þá mun kjörstjórn taka við tilnefningum almennra félaga um frambjóðendur fram til 26. mars. Tilnefningar og yfirlýsingar um framboð sendist á netfangið nordvestur@vg.is
Kjörstjórn óskar eftir því að framboðsyfirlýsingum fylgi fullt nafn, titill og sæti á lista sem sóst er eftir. Atkvæðisbær í forvalinu eru öll þau sem skráð eru í hreyfinguna í kjördæminu 10 dögum fyrir kjörfund eða 13. apríl.
Nánari upplýsingar um forvalsreglur má nálgast á vef VG:
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.