Atvinnuleysisbætur hækka frá áramótum

Atvinnuleysisbætur munu hækka þann 1. janúar næstkomandi en Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur undirritað reglugerð þess efnis og tekur hún gildi 1. janúar 2021.

Í frétt á vef Félagsmálaráðuneytisins segir að óskertar grunnatvinnuleysisbætur muni hækka um 3,6% en jafnframt verði greitt sérstakt viðbótarálag á grunnbætur atvinnuleysistrygginga á tímabilinu 1. janúar til 31. desember 2021 vegna áhrifa Covid-19 faraldursins. Álagið hljóðar upp á 2,5% og kemur til viðbótar áðurnefndri hækkun. Nemur heildarhækkunin því 6,1% og verða óskertar grunnatvinnuleysisbætur þannig 307.403 kr. á mánuði á árinu 2021. Þá verður hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta 472.835 kr. á mánuði miðað við óskerta atvinnuleysistryggingu.

„Frá því að Covid-19 faraldurinn hófst höfum við gripið til fjölbreyttra og markvissra aðgerða og nú erum við að hækka bæði tekjutengdar atvinnuleysisbætur og grunnbæturnar. Við vitum að næstu misseri verða krefjandi á ýmsum vígstöðvum en við erum farin að sjá ljósið við enda ganganna og ég er sannfærður um að viðspyrnan verður skörp þegar á næsta ári," segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir